Blikksmíði

Blikksmiðir vinna mikið með ál og aðra þunnmálma; setja upp klæðningar og loftræsikerfi ásamt því að þjónusta og viðhalda slíkum kerfum. Einnig felst starfið í sérsmíði ýmissa nytjahluta, svo sem tengivagna og eldvarnahurða.
Í starfinu er mikilvægt að þekkja vel þá málma og klæðningar sem unnið er með auk blikksmíðavéla en þær eru í auknum mæli orðnar tölvustýrðar.

Blikksmíði er löggilt iðngrein.

Nám

Um fjögur ár, þrjú ár í skóla ásamt starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Fróðlegt

Ál er í dag mest notað í viðfangsefnum blikksmiða.

Fáðu meiri upplýsingar um nám í Blikksmíði á heimasíðu Næsta skrefs